Connemara Atlantic Seaweed Company
   Hljóð    |    Download content:


Lýsing

https://www.connemaraseaweedcompany.ie/

FRÁ VESTURSTRÖND ÍRLANDS

HANDTÍNDUR LÍFRÆNN ÞARI

Noel Lee er fæddur og uppalinn í Lettermullen, fallegri og veðurbarinni eyju við vesturströnd Írlands. Í margar kynslóðir hefur Lee-fjölskyldan handtínt þara og þang undan Connemara ströndinni.

OKKAR MARKMIÐ

Okkar markmið er að handtína, á sjálfbæran hátt, þara og þang og gera úr því vörur sem hæfar eru til manneldis, bæði í formi heilsubótarefna og til að borða.  Það að hafa jákvæð áhrif á samfélag okkar og umhverfi er kjarninn í öllu því sem við gerum.

 

OKKAR ÁSTRÍÐA

Við viljum bjóða upp á ætt þang og þara, sem kemur frá okkar heimaslóðum, með sjálfbærri nýtingu og kynna þessar vörur sem nýjan fæðugjafa sem er hollur, næringarríkur, bragðgóður og í fullri sátt við umhverfið. Miklvægt er að viðurkenna mikilvægi þangs og þara fyrir lífríki sjávar og við þurfum að finna jafnvægi á milli þess og notkunar manna á því. Við höfum því tekið upp þá vistkerfisnálgun að stuðla að varðveislu og sjálfbærri nýtingu á réttlátan hátt.

Mest, ef ekki allt af því þangi og þara sem nú er til sölu hefur ferðast þúsundir kílómetra til að komast í stórmarkaðinn þinn. Lítil, staðbundin framleiðsla er lykillinn að hamingjuríkara lífi og leiðir til lægra kolefnisspors. Með því að bjóða upp á matvæli úr sjónum á okkar heimaslóðum vonumst við til að stuðla að kolefnissnauðu hagkerfi í sjálbæru umhverfi. Við vonum og trúum að þang og þari verði hluti af fæðu allra og hljóti þá viðurkenningu sem það á skilið. Ofurfæða, bæði í umhverfislegu og næringarlegu tilliti!

       

 

https://www.connemaraseaweedcompany.ie/


 



Samstarfsaðilar

EQUAL Ireland Education and Related Services
IDP SAS DI GIANCARLO COSTANTINO
INSTITUT DE HAUTE FORMATION AUX POLITIQUES
                                    COMMUNAUTAIRES
IRISH RURAL LINK CO-OPERATIVE SOCIETY
                                    LIMITED
Husavik Academic Center