Gagababy
   Hljóð    |    Download content:


Lýsing

Gagababy.ie var stofnað árið 2007 af Mairead O’Sullivan. Hún er mikill íþróttaunnandi, sérstaklega þegar kemur að íþróttum sem stundaðar eru undir GAA [Gaelic Athletic Association). Árið 2006 var hún á leið með lest til Cork til að horfa á leik og vildi klæða nýfæddan son sinn í liti síns liðs, en fann bara suttbuxur…það var febrúar og kalt!!  Þannig að hún ákvað að hanna sinn eigin náttgalla (kósýgalla) í Dyflinarlitum, og aðrar mömmur sem sáu gallann féllu strax fyrir honum. Þetta varð upphafið af Gagababy! Mairead segir svona frá:

Við sameinum ást okkar á GAA og tísku og skemmtun til að framleiða okkar eigið einstaka safn af varningi, þ.m.t. hinn upprunalega Gagababy galla. Gagababy hattar og derhúfur, Gagababy íþróttavarning og Gagababy peysur og bolir sem hægt er að fá sérhannað.

Glenda Vaughan gekk til liðs við liðið árið 2018 og er nýr eigandi www.gagababy.ie.  Glenda, sem er þriggja barna móðir, hélt áfram að bjóða upp á upprunalega vöruúrvalið en kom einnig inn með nýjan neista, orku og vörur. Við leggjum metnað okkar í að bjóða öllum viðskiptavinum okkar upp á eins góða þjónustu og hægt er, bæði hérna heima og erlendis.

Írskar fjölskyldur sem flutt hafa erlendis eru stór hluti af viðskiptavinum okkar.  Við vitum að viðskiptavinir okkar eru stoltir af menningunni okkar, sérstaklega írar sem hafa flutt erlendis. Flestar okkar vörur eru framleiddar í heimahúsi og það býður upp á mikinn sveigjanleika til að gera eitthvað mjög sérstakt og persónulegt fyrir viðskiptavini okkar, þannig að endilega heyrið í okkur ef þið eruð með einhverjar hugmyndir. Við elskum að kynnast viðskiptavinum okkar!

Við bjóðum einnig upp á vöruhönnun og framleiðslu á varningi sem tilheyrir öðrum íþróttagreinum eins og fótbolta og ruðningi.

www.gagababy.ie

 



Samstarfsaðilar

EQUAL Ireland Education and Related Services
IDP SAS DI GIANCARLO COSTANTINO
INSTITUT DE HAUTE FORMATION AUX POLITIQUES
                                    COMMUNAUTAIRES
IRISH RURAL LINK CO-OPERATIVE SOCIETY
                                    LIMITED
Husavik Academic Center