The Little Wax Company
   Hljóð    |    Download content:


Lýsing

https://thelittlewaxcompany.ie/

Um THE LITTLE WAX COMPANY

THE LITTLE WAX COMPANY LIMITED er staðsett í Lusk Co. Dublin, Ireland og starfar í framleiðslugeiranum. THE LITTLE WAX COMPANY LIMITED selur vörur fyrir $132,000 árlega.

Reksturinn hefur tekið hröðum framförum frá því að hann hófst árið 2018 og tveimur árum seinna (2020) var fyrirtækið skráð sem hlutafélag með tveimur stjórnendum, sem voru hjón.

Fyrirtækið skilgreinir sig sem framleiðanda lúxusvörumerkja. Ástæðan fyrir því að DEAL verkefnið tengist sögu fyrirtækisins eru eftirfarandi þættir:

•           Það byrjaði sem áhugamál.

•           Það er stutt síðan það var stofnað.

•           Þetta er fjölskyldufyrirtæki

•           Það selur vörur sínar einungis á netinu

•           Því er mikil áhersla á öfluga heimasíðu.

•           Á tveimur árum hefur fyrirtækið náð árlegri sölutölu sem nemur um           €100,000 ( Dun & Bradstreet)

•           Það var nýlega skráð sem hlutafélag með takmarkaða ábyrgð sem gefur til kynna tiltrú á sjálfbærni rekstursins

The Little Wax Company varð formlega að fyrirtæki í febrúar 2019 og hefur vaxið og dafnað síðan. Allt saman byrjaði þetta í eldhúsinu hjá Amy og Marc og var þar fyrstu árin, þar var allt búið til, öllu pakkað og pantanir sendar út – allt frá heimili fjölskyldunnar. Eldhúsið, herbergin og stofan voru undirlögð fyrir framleiðslu á vörum því ekkert lát var á pöntunum. Amy minnist þess að krakkarnir komust ekki inn í eldhúsið til að fá sér ristað brauð (a.m.k. ekki nema þola að brauðið bragðaðist eins og ilmvatn) og nýja matarborðið þeirra var ónothæft því það var þakið vaxi. Þegar mest var að gera á meðan starfsemin var ennþá á heimili þeirra þurftu krakkarnir að borða inni í herbergjunum sínum og hver einasti flötur heimilisins var undirlagður af vörum.

 

Á meðan allt var lokað

Á meðan allt var lokað árið 2020, var staðan sérlega erfið þar sem allir þurftu að vera heima alla daga, eitthvað þurfti að breytast og það strax. Þetta sumar tók The Little Wax Company stökkið og flutti í eigið húsnæði í North County Dublin, sem þýddi að fjölskyldan gat loksins aftur borðað ilmefnalausar máltíðir heima hjá sér. Í upphafi sagði Amy að hún ætti erfitt með að deila miklu vinnuálagi sínu með hverjum sem er þar sem hún hafði eigin kerfi og aðferðir í öllu framleiðsluferlinu. En eftir algjörlega brjálaða jólatörn árið 2019, þar sem ótrúleg aukning varð í pöntunum eru nú fleiri sem taka þátt í ferlinu. Hópurinn hjá The Little Wax Company er lítill en mjög duglegur og hafa Amy og Marc eingöngu ráðið heimafólk í vinnu.

 

Fjölskyldufyrirtæki

Þetta er svo sannarlega fjölskyldufyrirtæki, þar sem fjármálastjórinn og helsti stuðningsmaður Amy er Marc, eiginmaður hennar. Þrátt fyrir að sjá um fjármálahlið fyrirtækisins er hann ekki feiminn við að bretta upp ermar og stökkva í pökkunardeildina þegar mikið er um að vera! Taighlor, dóttir Amy er einnig öflugur liðsmaður fyrirtækisins, hún var á staðnum í fyrsta skipti sem Amy bjó til vaxbráð og hefur hún unnið í fullri vinnu hjá fyrirtækinu á sumrin. Þegar Sarah, systir Amy missti vinnuna vegna Covid-19 gekk hún til liðs við fyrirtækið og vann þar í hlutastarfi sem mannauðsstjóri.

Jafnvel Ella litla sem er 9 ára hjálpar til með því að útbúa skraut á pakkana sem The Little Wax Company sendir frá sér. Amy hefur alltaf haft yndi af því að baka og hefur í sér sköpunargleði og þörf til að búa eitthvað til. Þegar hún fór að kynna sér heim ilmefna uppgötvaði Amy fljótt að þarna voru tækifæri fyrir hana að skapa eitthvað sérstakt með sína náttúrulegu hæfileika að vopni. Þetta ásamt ástríðu fyrir hönnun hefur þýtt að vörur Amy hafa alltaf snúist um meira en bara lykt. Þær eru hannaðar til að vera falleg viðbót við heimilið ásamt því að skapa góða stemmingu og auðvitað gefa góða lykt. Það þarf aðeins að skoða vöruúrvalið sem í boði er til að átta sig á að fagurfræðin er jafn mikilvæg og það hvernig varan virkar. Bómullarkveikjar eru notuð í öllum kertunum og vaxið er blanda af kókosfeiti og soja. Þau eru paraffínlaus og þar af leiðandi algjörlega skaðlaust að brenna þau inni á heimilum. Hver einasta vara The Little Wax Company er handgerð á staðnum af Amy og hennar teymi áður en henni er pakkað inn og hún send til viðskiptavina. Gerðu heimilið þitt aðeins meira kósý með því að versla vörur frá The Little Wax Company.

 

 



Samstarfsaðilar

EQUAL Ireland Education and Related Services
IDP SAS DI GIANCARLO COSTANTINO
INSTITUT DE HAUTE FORMATION AUX POLITIQUES
                                    COMMUNAUTAIRES
IRISH RURAL LINK CO-OPERATIVE SOCIETY
                                    LIMITED
Husavik Academic Center